Heilsuefling, sem miðar að heilbrigðum lifnaðarháttum, fræðslu og forvörnum, verður æ mikilvægari þáttur í því velmegunarsamfélagi sem við búum við í dag. Sjúkdómar og kvillar á borð við, hjarta- og æðasjúkdóma, áunna sykursýki, vandamál tengd stoðkerfi, andlega og líkamlega vanlíðan eru allt alvarleg ef ekki lífshættuleg vandamál sem hafa áhrif á starfsgetu, úthald og lífshamingju einstaklingsins. Þessa þætti má oft rekja til streitu, hreyfingarleysis og óhentugs fæðuvals, svo fátt eitt sé nefnt.
Í flestum tilvikum má tengja velmegunar sjúkdóma vestrænnasamfélaga beint við lifnaðarhætti einstaklinga.
Koma má í veg fyrir þessa alvarlegu sjúkdóma og kvilla með reglubundnu eftirliti á líkamlegu ástandi og öflugri forvarnarstarfssemi. Forvarnarstarfsemi á borð við fræðslu og hvatningu miðar að því að vekja fólk til meðvitundar um heilbrigða lífshætti og hvernig efla megi vellíðan og lífsorku.
Hrif ehf. er þjónustufyrirtæki
sem hóf þjónustu sína í janúar2006.