TIL BAKA

Ísland: öruggur staður til að vera á

GEFIÐ ÚT

12/04/2026

FORM

Skýrsla + Hlaðvarp

MÁLEFNI

Öryggis- og varnarmál

HÖFUNDAR

Einar Mäntylä

Pétur Jónasson

HLUSTAÐU Á SKÝRSLUNA

0:00/1:34

HLUSTAÐU Á SKÝRSLUNA

0:00/1:34

HLUSTAÐU Á HLAÐVARPIÐ

HRIF-varp kynning

0:00/1:34

HLUSTAÐU Á SKÝRSLUNA

HLUSTAÐU Á SKÝRSLUNA

0:00/1:34

white and brown floral round container

ÚTDRÁTTUR

Í ljósi vaxandi kröfu um hernaðarframlag Íslendinga fjallar HRIF hugveita um hvernig herlaust ríki eins og okkar geti eflt viðbragðsgetu og hert á öryggismálum - á eigin forsendum. Stungið er upp á því að björgunarsveitirnar, einn af grunnstólpum öryggis á landinu, öðlist stærri sess í varnar- og öryggisumræðunni.

Um 4.000 manns starfa í 93 björgunarsveitum, 37 slysavarnardeildum og 48 unglingadeildum víðs vegar um landið. Þessir sjálfboðaliðar sinna ekki einungis daglegu björgunarstarfi hér á landi og til sjós heldur hafa þeir sannað sig á alþjóðavettvangi: rústabjörgunarsveit okkar var t.d. fyrst allra á staðinn þegar jarðskjálftarnir riðu yfir Haítí árið 2010 og vann þar þrekvirki. Það er til merkis um getu okkar. 

HRIF leggur til að björgunarsveitarstarf verði fellt inn í menntakerfið frá grunnskólaaldri með reglubundinni þjálfun sem þróast í takt við aldur og þroska nemenda. Á framhaldsskólastigi gæti þjálfunin komið inn sem einingabært nám og náð yfir vettvangsbjörgun, netöryggi, fjallamennsku, drónagreiningu o.m.fl.

Ávinningurinn væri margþættur: tryggari mönnun björgunarsveita, bætt lýðheilsa, aukið sjálfstraust og samfélagsleg ábyrgð meðal ungs fólks. Síðast en ekki síst væri öruggara að vera á Íslandi, bæði fyrir íbúa og ferðamenn. 

Óháður vettvangur fyrir gagnrýna hugsun

Reykjavík, Ísland

© 2026 Hrif. Öll réttindi áskilin.

© 2026 Hrif. Öll réttindi áskilin.